Nú er hægt að panta tíma í símaráðgjöf. Bóka þarf tíma í símaráðgjöf eins og í staðbundinni ráðgjöf og er það gert með því að smella á hnappinn "Bóka tíma", fylla þar út beiðni og velja sérstaklega þar sem stendur Símaráðgjöf.
Þessi þjónusta getur nýst þeim sem búa á landsbyggðinni og öllum þeim sem vilja geta nýtt sér ráðgjöf í gegnum síma. Hafa ber í huga að staðbundin ráðgjöf er ávalt besti kosturinn þar sem ráðgjöfin fer fram auglistis til auglitis og að símaráðgjöf getur aldrei verið sambærileg hvað varðar fagleg gæði.
Símaráðgjöf getur hentað þegar um afmarkað efni er um að ræða og í þeim tilvikum þar sem fólk á ekki kost á því að sækja staðbundna ráðgöf. Símaráðgjöf getur því verið betri kostur en engin ráðgjöf en staðbundin ráðgjöf er alltaf besti kosturinn.